Bókhald · Uppgjör · Rekstrarráðgjöf
Bókhald sem skilar sér —
og tölur sem þú skilur.
SG ráðgjöf sér um daglegt bókhald, virðisaukaskatt, laun og ársuppgjör fyrir íslensk fyrirtæki. Þú færð skilin á réttum tíma og reglulegt yfirlit sem segir þér hvar reksturinn stendur.
Þjónusta
Allt utanumhald á einum stað.
Þú velur það sem þú þarft — allt frá einföldu bókhaldi upp í fulla umsjón með fjármálum félagsins.
Bókhald og afstemmingar
Regluleg færsla fylgiskjala, bankaafstemmingar og utanumhald um viðskiptamenn og lánardrottna í skýjakerfi sem þú hefur alltaf aðgang að.
Virðisaukaskattur og skil
VSK-uppgjör og skil á réttum tíma ásamt öðrum reglubundnum skilum til Skattsins. Engin álög vegna gleymdra tímamarka.
Launavinnsla
Launaútreikningur, staðgreiðsla, lífeyrissjóðir, stéttarfélagsgjöld og skilagreinar — með réttum kjarasamningsforsendum.
Ársreikningar og skattframtöl
Uppgjör ársins, ársreikningur og skattframtal félagsins ásamt frágangi gagnvart ársreikningaskrá.
Rekstrarráðgjöf og greining
Framlegðargreining eftir verkum og deildum, kostnaðargreining, verðlagning, áætlanagerð og greiðsluflæði. Hér liggur oftast stærsti ávinningurinn.
Lykiltölur og skýrslugjöf
Yfirlit sem sýnir tekjur, framlegð, útistandandi kröfur og lausafjárstöðu — svo þú þurfir ekki að bíða eftir ársuppgjöri til að sjá stöðuna.
Yfirlitið
Svona lítur mánuðurinn út.
Í stað þess að fá möppu til baka færðu yfirlit sem hægt er að lesa á einni mínútu — og skýringar á því sem breyttist.
| Liður | Í mánuði | Frá áramótum |
|---|---|---|
| Rekstrartekjur | 14.820.000 | 92.640.000 |
| Efniskostnaður | −5.190.000 | −33.350.000 |
| Launakostnaður | −6.040.000 | −37.180.000 |
| Annar rekstrarkostnaður | −1.310.000 | −8.470.000 |
| Framlegð (EBITDA) | 2.280.000 | 13.640.000 |
Ferlið
Þrjú skref frá fyrsta samtali.
Staðan skoðuð
Við tökum stutt samtal um reksturinn, umfangið og það sem er að þvælast fyrir í dag. Þú færð verðtilboð með föstu mánaðargjaldi.
Bókhaldið tekið yfir
Ég set upp eða tek yfir bókhaldið, stilli lyklaborðið að rekstrinum og kem fylgiskjalaflæðinu í fast form. Yfirtaka frá öðrum bókara er einföld.
Föst skil og yfirlit
Eftir það gengur þetta sinn vanagang: skilin fara inn á réttum tíma og þú færð yfirlit yfir stöðuna með reglubundnum hætti.
Stefán Gestsson
- Menntun
- BSc í viðskiptafræði
- Meistaragráða
- MABI — Management Accounting and Business Intelligence
- Sérsvið
- Rekstrarbókhald, framlegðargreining og upplýsingagjöf til stjórnenda
- Félag
- SG ráðgjöf ehf. — kt. 640823-0700
- Starfsstöð
- Laugavegur 13, 4. hæð
101 Reykjavík
Um mig
Bókhald á ekki bara að vera skylda sem klárast fyrir skilafrest. Það er besta heimildin sem þú átt um eigin rekstur.
Ég er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í rekstrarbókhaldi og viðskiptagreind (MABI). Sú menntun snýst nákvæmlega um það sem gerist eftir að bókhaldið er fært: hvernig tölurnar eru settar fram þannig að þær nýtist við ákvarðanir um verðlagningu, mönnun, fjárfestingar og greiðsluflæði.
SG ráðgjöf þjónustar lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja bókhaldið í öruggum farvegi og hafa aðgang að einhverjum sem þekkir bæði debet og kredit og daglegan rekstur. Þú talar alltaf beint við mig — það er enginn milliliður og ekkert númerakerfi.
Algengar spurningar
Það sem oftast er spurt að.
Hvað kostar bókhaldsþjónusta hjá SG ráðgjöf?
Verð ræðst af umfangi rekstrarins — fjölda fylgiskjala, starfsmanna og skila. Eftir stutt samtal færðu verðtilboð með föstu mánaðargjaldi svo kostnaðurinn komi ekki á óvart.
Er flókið að skipta um bókara?
Nei. Yfirtaka á bókhaldi frá öðrum bókara eða bókhaldsstofu er einfalt ferli; gögnin eru flutt yfir og lyklaborðið stillt að rekstrinum áður en næsta skilatímabil hefst.
Sérð þú um virðisaukaskatt og launaskil?
Já. VSK-uppgjör, staðgreiðsla, lífeyrissjóðsskil og aðrar skilagreinar eru hluti af þjónustunni og fara inn á réttum tíma.
Þjónustar SG ráðgjöf fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins?
Já. Bókhaldið er unnið í skýjakerfi og fylgiskjöl berast rafrænt, þannig að staðsetning skiptir ekki máli. Starfsstöðin er á Laugavegi 13 í Reykjavík.
Hafa samband
Fáðu verðtilboð.
Hringdu eða sendu línu með stuttri lýsingu á rekstrinum — umfangi, fjölda starfsmanna og hvað þú ert að nota í dag. Ég svara yfirleitt samdægurs.